top of page
Ungbarnasund framhald
Boðið er upp á framhaldsnámskeið fyrir börn sem lokið hafa byrjendanámskeiði í ungbarnasundi hjá Sundskóla Hörpu eða öðrum kennara.
Námskeiðið miðar að því að örva hreyfiþroska og styrk barnanna í ögrandi umhverfi. Haldið er áfram og byggt ofan á það sem við lærðum á byrjendanámskeiðinu og inn koma nýjar æfingar sem henta aldri og getu barnanna.
Kennt er í laug sem er hituð sérstaklega upp í 34 gráður fyrir sundtímana svo hún henti vel fyrir ungbarnasund, á bakka laugarinnar eru skiptiborð fyrir börnin og sturta til að skola af þeim eftir sundferðina.
Námskeiðin eru 8 skipti, nema að annað sé auglýst sérstaklega.Þetta námskeið má taka aftur og aftur. Þetta námskeið er kennt bæði í Suðurbæjarlaug og í Mörkinni.
bottom of page