Algengar spurningar
Ef þú hefur spurningar varðandi námskeiðin eða annað tengt þeim þá er alltaf velkomið að senda skilaboð hér á heimasíðunni eða hafa samband í tölvupósti á harpa@sundskolihorpu.is
1
Mega systkini vera með í lauginni?
Í Suðurbæjarlaug eru systkini velkomin með ofan í laugina en greiða þarf fyrir öll börn á aldursbili námskeiðs. Öllum er velkomið að fylgjast með af bakkanum.
Í Mörkinni eru eingöngu börn sem skráð eru á námskeið og fullorðnir fylgdarmenn þeirra leyfðir í lauginni og heita pottinum. Systkini og aðrir gestir mega fylgjast með tímunum af bakkanum.
2
Má taka myndir í tímunum?
Ykkur er velkomið að taka myndir í sundlauginni en bera þarf virðingu fyrir einkalífi annarra sem á námskeiðunum eru. Ykkur er velkomið að taka myndir af kennara með börnin.
Athugið að það er stranglega bannað að taka myndir í búningsklefum laugarinnar.
3
Er hægt að greiða með frístundastyrk?
Hægt er að nýta frístundastyrki sveitafélaga til að greiða námskeið samkvæmt reglum viðeigandi sveitafélags.
Ölfus, Hveragerði, Suðurnesjabær og Vogar bjóða upp á notkun frístundastyrks frá fæðingu. Hafnarfjörður bíður upp á notkun frístundastyrk frá árinu sem barnið verður 3ja ára.
Garðabær og Kópavogur bjóða upp á notkun frístundastyrks frá árinu sem þau verða 5 ára.
Þetta eru þau sveitafélög sem í dag hafa tengingu við Sundskóla Hörpu.
4
Mega ömmur og afar mæta í laugina?
Já það er gert ráð fyrir 1-2 fullorðnum einstaklingum með hverju barni en það er foreldra að ákveða hverjir þeir aðilar eru.
5
Er mögulegt að koma í kafmyndatöku?
Já, reglulega yfir vetrarmánuðina er tekinn frá laugartími og ljósmyndarar fengnir í laugina og foreldrum boðið upp á að kaupa kafmyndatöku hjá ljósmyndara gegn vægu gjaldi. Reynt er að halda kafmyndatökur fljótlega eftir að námskeiðum lýkur og eru þær auglýstar í skilaboðum á abler og í sundtímum þegar skráning hefst.
6
Er hægt að kaupa gjafabréf á námskeið?
Já það er hægt að kaupa rafrænt gjafabréf á abler.io/shop/sundskolihorpu og fá það sent í tölvupósti til sín á það netfang sem skráð er á abler.
Það er einnig hægt að hafa samband við harpa@sundskolihorpu.is og panta útprentað gjafabréf og sækja það heim til Hörpu í Garðabæ samkvæmt samkomulagi.

