
Ungbarnasund framhald
Boðið er upp á framhaldsnámskeið fyrir börn sem lokið hafa byrjendanámskeiði í ungbarnasundi hjá Sundskóla Hörpu eða öðrum kennara.
Námskeiðið miðar að því að örva hreyfiþroska og styrk barnanna í ögrandi umhverfi. Haldið er áfram og byggt ofan á það sem við lærðum á byrjendanámskeiðinu og inn koma nýjar æfingar sem henta aldri og getu barnanna.
Kennt er í laug sem er hituð sérstaklega upp í 34 - 36 gráður fyrir sundtímana svo hún henti vel fyrir ungbarnasund, á bakka laugarinnar eru skiptiborð fyrir börnin og sturta til að skola af þeim eftir sundferðina.
Mögulegt að vinna upp tapaða tíma með öðrum hópum á sama tímabili. Athugið að greiða getur þurft gjald ef uppbótatímar eru teknir í annarri laug en námskeiðið sjálft.
Framhald 1 má taka aftur og aftur en börn sem hafa lokið framhaldi 1 eru einnig velkomin í Sundskóla 1-2 ára frá 10 mánaða aldri.
Þetta námskeið er kennt bæði í Suðurbæjarlaug og í Mörkinni.
Hópar í boði:
Framhald 1:
-
Laugardaga kl. 11:45 í Mörkinni
-
Laugardaga kl. 13:15 í Mörkinni
-
Sunnudaga kl. 11:30 í Suðurbæjarlaug
Hægt er að greiða námskeiðið með frístundastyrk frá Vogum, Suðurnesjabæ, Hveragerði og Ölfusi.
